157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:05]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Fyrir síðustu kosningar voru forystumenn núverandi ríkisstjórnarflokka mjög skýrir um tvennt, að ná tökum á verðbólgu og vöxtum og að hækka ekki skatta á venjulegt vinnandi fólk. Í því frumvarpi sem við munum greiða atkvæði um hér á eftir er verið að svíkja hvort tveggja. Það er verið að svíkja hvort tveggja. Hér eru gríðarlegar skattahækkanir á allan almenning í landinu og það er mikil ástæða til að hafa miklar áhyggjur af því hvaða áhrif það mun hafa á verðbólguna. Það eru allar líkur á því, því miður, að þetta muni stuðla að hærri verðbólgu í landinu nú þegar síst skyldi. Þetta eru, frú forseti, ekkert nema svik.