breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Jólin eru að nálgast. Skattasníkir er kominn til byggða, mættur hér í dag í formi jólagjafalista ríkisstjórnarinnar, vinstri ríkisstjórnarinnar. Hvað er í pakkanum? Vörugjöld á bifreiðar, 7,5 milljarðar; afnám skattahagræðis milli hjóna og sambúðarfólks; kílómetragjaldið; krónutöluhækkanir umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans; 3,7% hækkun á fjölmörgum vörum. Kannski væri betra, frú forseti, ef þess væri nokkur kostur, að unnt væri að afþakka þessa jólapakka vinstri ríkisstjórnarinnar.