breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Örlítil leiðrétting: Hv. þm. Pawel Bartoszek, þetta ætti ekki að þarfnast útskýringa. En það að framlengja ekki tímabundinn skatt sem hefur runnið sitt skeið er ekki skattalækkun, það er að viðhalda ekki skattahækkun og á því er eðlismunur. Stóru loforð Samfylkingarinnar og Viðreisnar voru að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. Þetta vita allir hér inni. Þetta veit öll þjóðin, þökk sé frábærri herferð fyrir kosningar. Það er hvert mannsbarn í landinu meðvitað um þessi stóru loforð. Svikin eru nú að koma fram í fyrstu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar með stórfelldum skattahækkunum, ekki bara skattahækkunum heldur stórfelldum skattahækkunum, þvert á öll glæsilegu vídeóin í vinnuvettlingum með hjálm og sleggju.