breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að sem einstaklingur sem var almennur borgari á síðasta kjörtímabili þá klóraði maður sér oft í höfðinu yfir því af hverju ríkisstjórnin náði ekki stjórn á efnahagsmálum í landinu. Af hverju var meðalhalli ríkissjóðs 115 milljarðar á síðustu sjö árum ríkisstjórnarinnar. (Gripið fram í.)
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að gefa ræðumanni hljóð.)
En það birtist í raun í málflutningi stjórnarandstöðunnar í dag grundvallarmisskilningur á því hvernig maður þarf að reka ríkissjóð á ábyrgan hátt, hver munurinn er á sköttum og gjöldum og hvað það er að hækka krónutölur eftir verðlagsþróun. Hér erum við að leggja fram frumvarp þar sem tekjuskattur einstaklinga stendur í stað. Erfðafjárskattur stendur í stað, fyrirtækjaskattur lækkar milli ára, innviðagjald lækkar milli ára. Þetta eru allar skattahækkanirnar. Hvar hefur mesta umræðan verið? Jú, að það sé verið að tryggja tekjustrauma til að standa undir viðhaldi vega, vetrarþjónustu, byrja aftur að bora göng, að fjármagna samgönguáætlun sem síðasta ríkisstjórn réði ekki við að samþykkja í þinginu eða fjármagna. Svo koma þau hérna í ræðu eftir ræðu (Forseti hringir.) með þvílíkt yfirlæti og þurfa að blekkja kjósendur að hér sé verið að hækka skatta á venjulegt vinnandi fólk. Hvað er verið að gera? (Forseti hringir.) Veiðigjöldin eru að fara upp, það er jöfnunarstyrkur varðandi raforku þar sem er verið að niðurgreiða raforkukostnað á landsbyggðinni. (Forseti hringir.) Þetta eru nú allar skattahækkanirnar.