157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:12]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé mikilvægt að við förum í grunninn á því sem hér er verið að gera. Hér er ríkisstjórn sem nær ekki tökum á efnahagsmálum og verður að grípa til þess ráðs að sækja meira hjá almenningi; þessar skattahækkanir beinast gegn almenningi. Til þess þarf að svíkja kosningaloforð, sem er miður, en þá liggur það fyrir gagnvart kjósendum hvernig menn ætla að halda á málum hér. Það eru þessir skattar sem menn hafa verið að nefna, hvort sem það eru vörugjöldin, sem eru afar brött og gerð með óboðlegum fyrirvara fyrir fyrirtæki og almenning, fáránlegt kílómetragjald og afnám samsköttunar sem bitnar m.a. sérstaklega illa á fólki með pínulítil börn. Það er í anda þess sem ríkisstjórnin neitar að gera í sambandi við fæðingarorlofið, að liðka fyrir barneignum á Íslandi. Allt er þetta því í sömu átt, menn eru að reyna að bjarga sér með því að sækja meira og meira af sjálfsaflafé almennra borgara vegna þess að þeir geta ekki tekið til í eigin ranni. Þetta frumvarp er til merkis um það.