breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um frumvarp ríkisstjórnar sem virðist segja eitt en gera allt annað. Talar fyrir því að hækka ekki skatta á almennan borgara en er samt sem áður að hækka skatta á leigu húsnæðis, það er verðlagsuppfærsla krónutöluskatta sem er upp á 3,7% í staðinn fyrir 2,5%. Skrásetningargjöld í opinbera háskóla hækka. Samsköttun hjóna er afnumin. Lyfjakostnaður einstaklinga, hins almenna borgara, mun hækka, vörugjöld eru að hafa áhrif á almenning og fyrirtæki í landinu, kílómetragjald einnig og í rauninni er verið að gera ráð fyrir tekjum sem munu hreinlega ekki skila sér í ríkissjóð. Samtök atvinnulífsins hafa tekið það saman að skattahækkanir stjórnvalda muni hækka verðbólgu um 1% og auka verðtryggðar skuldir heimila landsins um 20 milljarða kr. Og fyrir hvað? Jú, fyrir 30 milljarða í ríkissjóð.
Sagan sýnir okkur, frú forseti, að allur kostnaðarauki fyrirtækja og ríkisins fer út í verðlagið, fer til almennings í landinu. Þannig hefur það alltaf verið og því miður mun það áfram vera þannig.