157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:17]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Vegna orða hv. þingmanns og þingflokksformanns Samfylkingarinnar hlýt ég að koma hér upp og spyrja hvernig menn hafi geð í sér til þess að réttlæta þessa stórfelldu skattahækkun á bifreiðaeigendur sem nú er verið að greiða atkvæði um með því að vísa til þess að það þurfi að bæta í vegagerð, að það þurfi að fjármagna vegakerfið. Bifreiðaeigendur hafa lagt fram 80 milljarða í formi skatta til ríkissjóðs. Það er ekki áformað að eyða meiru en 48–49 milljörðum í vegasamgöngur. Það eru engin áform um að nýta þá fjármuni sem innheimtast af þessum stórfelldu skattahækkunum á venjulegt fólk í vegasamgöngur. Það eru áform um að setja þetta í hítina og fjármagna gæluverkefni ríkisstjórnarinnar; þau verkefni sem þau koma sér ekki saman um að skera niður og efna fráleit kosningaloforð, að minnsta kosti sumra flokka, hér um að gera allt fyrir alla á kostnað annarra.