157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:18]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég er komin aftur hérna upp. Ég gat ekki setið á mér eftir orð hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan að meiri hluti þingmanna ætti kannski að kynna sér hvað þeir eru að leggja fram. Ef hv. þingmenn ætla í alvöru að halda því fram að þeir séu ekki að fara að hækka skatta þá held ég að þið séuð ekki búin að kynna ykkur málið. Kílómetragjöld, vörugjöld, afnám samsköttunar og fleira. Já, 35 milljarðar samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Ég vísa öllum blekkingum til föðurhúsanna.