breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Svikin kosningaloforð stjórnarflokkanna um að hækka ekki skatta á venjulegt vinnandi fólk. Hér er nákvæmlega verið að hækka skatta á venjulegt vinnandi fólk. Það er ekki tekið tillit til fjölmargra réttmætra athugasemda sem hafa borist. Það er ekki tekið tillit til hegðunarbreytinga. Það er ekki tekið tillit til neins. Hér á að afnema samsköttun hjóna, setja á kílómetraskatt, vörugjaldaskatt, skatt á þetta og skatt á hitt, skatt á bifreiðar, ofskatta skemmtiferðaskip og ég veit ekki hvað. Þetta er þungt fyrir venjulegt fólk á Íslandi. Þetta er gert í boði jafnaðarmannaflokks Íslands, Samfylkingarinnar.