breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Vegna ummæla hv. þm. Vilhjálms Árnasonar um að það væri lítið eða ekkert að fara aukalega í innviðaframkvæmdir þá erum við — bara varðandi viðhaldið. Undanfarin ár hafa verið að fara 12–13 milljarðar kr. í viðhald. Strax á næsta ári erum við að fara í 7,5 milljarða. Árið 2027 og áfram ætlum við að fara í 20 milljarða. Við ætlum að stöðva uppsöfnun innviðaskuldarinnar svo það liggi fyrir. Varðandi vetrarþjónustuna þá er verið að bæta 14 milljörðum við. Þetta er gríðarlega vanfjármögnuð þjónusta og við erum að bæta úr því. Annað sem er líka mikilvægt: Við erum með fullfjármagnaða samgönguáætlun miðað við fjármálaáætlun og við horfum til innviðafélags. Það er nokkuð sem síðustu ríkisstjórn tókst aldrei að koma á koppinn en var að pæla í en gerði ekkert í málinu. Við erum komin með áform um að gera það og það mun fjármagna jarðgangaáætlun. Þetta er meira en síðasta ríkisstjórn var að gera. Það er að verða algjör bylting í samgönguframkvæmdum og innviðaframkvæmdum í landinu. Höfum það alveg á hreinu. Þessi aukning, sem fer upp í 20 milljarða, það má segja að veiðigjaldið sé þar og gott betur.