breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Já, það hefur aðeins kristallast enn og aftur hjá þeim sem þó koma og tjá sig um þessa hluti hér úr ranni stjórnarmeirihlutans þetta grundvallarviðhorf til ríkisreksturs; það þurfi að fjármagna verkefnin sem á að fara í og það sé gert með skattahækkunum. Við þekkjum þetta stef líka á sveitarstjórnarstigi þar sem litið er á álagningarhlutföll og álagningu sem tekjulind. En í þessari umræðu allri saknar maður þess og spyr sig — það hefur enginn, a.m.k. sem ég hef heyrt til, úr röðum stjórnarmeirihlutans svarað því af hverju ekki megi skera niður í opinbera rekstrinum, hagræða, sameina verkefni, leggja niður stofnanir. (Forseti hringir.) Þessar tillögur sem t.d. við Sjálfstæðismenn höfum verið að leggja fram, það hefur enginn svarað því af hverju ekki megi hagræða til að eiga fyrir öllum þessum verkefnum sem á að ráðast í.