157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:24]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans trúi raunverulega sjálfir því sem þeir halda fram hér, hlutum eins og að þeir séu ekki að fara að hækka skatta þrátt fyrir að leggja fram frumvarp með ótal skattahækkunum. Eru þeir farnir að trúa eigin blekkingum? Það var ekki annað að heyra á þeim hv. þingmönnum stjórnarmeirihlutans sem hafa komið upp en að annaðhvort væru þeir viljandi að reyna að blekkja aðra eða þeir hefðu sjálfir verið blekktir. Kannski kemur það í ljós eftir því sem atkvæðagreiðslunni vindur fram. En þetta er ekki gott, frú forseti, að geta ekki einu sinni átt samtal við hv. þingmenn meiri hlutans því þeir eru komnir í einhvern annan heim. Það er sama hvað er bent á það sama, það er sama þótt það sé lesið upp af blöðunum sem þeir sjálfir hafa skrifað, frumvörpin frá þeim sjálfum, þeir bara tala um eitthvað allt annað. Þetta er mjög erfitt, frú forseti, og ég beini því sérstaklega til hæstv. forseta. Forseta hlýtur að vera umhugað um að þingstörfin skili einhverjum árangri.