157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:26]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það virðist skipta máli hver er við völd miðað við hvernig umræðan er. Þessi umræða um bandorm hefur verið á bilinu ein til þrjár klukkustundir af agaðri umræðu síðustu tíu ár. Minni hlutinn hefur haldið uppi 17 klukkustunda umræðu. Það er allt í efsta stigi. Hér er verið að ræða um skatta á venjulegt fólk þegar um er að ræða gjaldahækkanir sem eru í takti við margar af þeim gjaldahækkunum sem síðasta ríkisstjórn var sjálf með og virðist ekki einu sinni geta kannast við bifreiðagjaldaáætlanir sem eru búnar að vera í vinnslu í fjármálaráðuneytinu um áraraðir. Gott og vel, fólk er í minni hluta, fólk getur hér hlegið, verið í efsta stigi og verið með alls konar orð. En það liggur alveg fyrir að það virðist skipta máli hverjir sitja hvoru megin upp á hvort fólk geti kannast við það hvað fylgir því að sýna ábyrgð í ríkisrekstri. Nú vitum við að það er eitt að vera í minni hluta og annað að vera í meiri hluta því fólk getur ekki haldið ábyrgð sinni eftir að það missir völdin.