157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:27]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins leiðrétta mig. Það eru ekki 7 milljarðar á næsta ári sem fara í viðhald, það eru 17,5 milljarðar, úr 12–13 milljörðum kr. Þetta eru 17,5 milljarðar árið 2026 og eftir það 20 milljarðar á ári í viðhald. Það er meira en síðasta ríkisstjórn gerði. Bara í sumar settum við 3 milljarða í viðhald og fengum gríðarlega góð viðbrögð við því. Það er meira en síðasta ríkisstjórn gerði. Það er alveg kominn tími á það að þeir flokkar sem voru í síðustu ríkisstjórn og eru enn hér á þingi fari að hugsa um það hvað þeir ætluðu sér að gera þá. Ég nefni kílómetragjaldið sem dæmi, þá var það frumvarp frá þeirri ríkisstjórn. Og hvað er gert núna? Nú tala menn gegn málum sem þeir voru fylgjandi fyrir nokkrum mánuðum. Í guðanna bænum, reynið að gera aðeins betur fyrst þið eruð nú í stjórnarandstöðu.