breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Þar kom að því að hæstv. yfirlætisráðherra — nei, fyrirgefið, hæstv. forsætisráðherra, — kæmi hér og talaði aðeins yfir þingheimi. Eigum við að fara yfir orð hæstv. forsætisráðherra í stjórnarandstöðu? Eigum við að segja hvað hún, þá hv. forystumaður í stjórnarandstöðu, sagði um krónutöluskattana? Eigum við að rifja það upp? Árás á tekjulægsta fólkið, árás á tekjulægsta fólkið. Hvað er það núna? Bara sjálfsagt og hún skilur ekkert í því af hverju allir eru eitthvað að tuða yfir þessu. Hæstv. forsætisráðherra sagði sem hv. stjórnarþingmaður: Seðlabankinn er einn að berjast gegn verðbólgunni. Það vantar allt aðhald og ábyrgð í ríkisfjármálum. Nú kemur hæstv. forsætisráðherra og bara sleppir aðhaldinu, bara sleppir því, og talar síðan yfir fólki hér með ótrúlegu yfirlæti. Og aðeins, virðulegur forseti, (Forseti hringir.) út af þessu með veiðigjöldin, af því að hér kemur formaður þingflokks Samfylkingarinnar — gaman að sjá þig — (Forseti hringir.) og segir að þetta séu bara skattar af veiðigjöldum. Ef menn hefðu hlustað á aðvörunarorðin þá hefðu menn (Forseti hringir.) kannski fengið eitthvað út úr þeirri skattahækkun en það eru ekki 7,6 milljarðar að koma, (Forseti hringir.) það eru ekki 5,4 milljarðar að koma; kannski 1 til 3 vegna þess að þetta var illa unnið nákvæmlega eins og aðrar skattahækkanir, virðulegi forseti, í þessum skattormi.
(Forseti (ÞSv): Ræðutími, af þessu tilefni, er ein mínúta en ekki ein og hálf mínúta.)