157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:30]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég hlustaði hér á hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson og það fékk mig til að velta því fyrir mér í hvaða hliðarveruleika hv. þingmaður lifir. Við erum hér að tala um útblásin fjárlög upp á 143 milljarða. Það er það sem hæstv. forsætisráðherra kallar ábyrgð í ríkisrekstri. Skattahækkanir á allt milli fjalls og fjöru og ófjármögnuð samgönguáætlun sem er sögð fjármögnuð af því að hún á að fara í eitthvert innviðafélag sem er ekki einu sinni búið að stofna. Stöðugleikareglan er kolfallin. Þetta er svolítið farið að minna á textann hjá Spilverki þjóðanna: Við í sirkus Geira Smart trúum því að hvítt sé svart.