breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Já, mér finnst kannski ekki alveg nógu bjart yfir þessum sal, ég viðurkenni það. Ég kem þá aftur til þess að reyna að gleðjast og ég ætla að gleðjast yfir því að þessi tímabundna skattahækkun síðustu stjórnar á fyrirtæki er að falla úr gildi. Er það skattalækkun eða ekki? Ég veit það ekki. Seinasta stjórn ákvað að setja hana á og síðan ákvað starfsstjórn Bjarna Benediktssonar að framlengja hana. Það sem mér finnst skipta máli er að þið eruð þá að segja að sjálfstætt starfandi verktakar og aðrir muni á næsta ári, þegar þeir skila sínu uppgjöri, greiða lægra hlutfall af sínum hagnaði til ríkisins. Og ég bara gleðst yfir því.