157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:32]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði svo sem ekki að koma hingað upp í annað skipti en sá mig eiginlega knúinn til þess vegna þess að hér hafa hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar mikið talað um upplýsingaóreiðu og að það sé mikilvægt að tölur séu réttar. Hæstv. innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, talaði hér um mikla aukningu til samgöngumála. Við höfum heyrt það hér í þessum sal að búið er að lofa 7,5 milljörðum í vörugjaldaaukningu til samgöngumála, 7,5 milljörðum úr veiðigjaldi og 3,3 milljörðum úr kílómetragjaldi, þetta eru 18,3 milljarðar. En hvað segja fjárlögin, virðulegur forseti? Hvað segja fjárlögin um samgöngumál? Fjárfestingarframlögin, sem eru nýframkvæmdir og viðhald, voru 36,5 milljarðar síðast og fara í 43,5 milljarða. Þetta er aukning upp á 7 milljarða, virðulegur forseti. Þetta er 7 milljarða kr. aukning, sem er vel en ég get ekki betur séð en að hún fari nærri því að öllu leyti (Forseti hringir.) í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er ekki minnst á innviðafélagið í þessum fjárlögum, ekki einu orði. (Forseti hringir.) Það er ekki ein króna í innviðafélagið. Ég held að það sé ekki einu sinni heimild til að stofna það í 6. gr.