157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:34]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Miðflokkurinn tekur ekki undir þau sjónarmið stjórnvalda að nauðsynlegt sé að hækka krónutölugjöld um 3,7% og fara þannig yfir verðbólgumarkmið Seðlabankans sem er 2,5%. Sú ákvörðun að láta þau halda verðgildi sínu fer gegn því að ríkið gangi á undan með góðu fordæmi. Ég held því að við ættum öll að skoða það og íhuga það, ég biðla til ykkar, í öllum þeim atkvæðagreiðslum sem hér koma á eftir að það er ekki nauðsynlegt að hækka um 3,7%. Það er betra að halda okkur við 2,5% til að ganga á undan með góðu fordæmi. Jafnframt stenst ekki sú staðhæfing stjórnvalda að um sé að ræða aðgerð á tekjuhlið ríkisfjármála sem miði að því að draga úr þenslu og verðbólgu. Slík staðhæfing stenst ekki þegar sama ríkisstjórn er á sama tíma að auka útgjöld verulega.