breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Já, stjórnarmeirihlutinn er búinn að fella breytingartillögu um að miða við verðbólgumarkmið og ætlar hér að samþykkja að hækka alla tekjuliði, þessar svokölluðu krónutöluhækkanir, um 3,7%. Ég minni á það sem hæstv. forsætisráðherra sagði á síðasta kjörtímabili þegar hún ítrekaði að þessir flötu skattar, sem krónutöluhækkanir eru, komi verst niður á þeim sem minnst hafa. Stóreignafólkið getur alveg staðið undir því. En fólkið sem verst hefur það — svona hækkanir koma verst niður á því. Og þetta voru orð hæstv. forsætisráðherra þegar hæstv. forsætisráðherra var í stjórnarandstöðu.