157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:39]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Forseti. Hér greiðum við atkvæði um áfengisgjöldin. Ég vil bara minna á það að ég held að við séum það ríki í vestrænum heimi sem hefur hvað hæst áfengisgjöld. Ferðaþjónustan, ein af lykilatvinnugreinum okkar, hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að við hækkum ekki þessi gjöld árlega í samræmi við verðbólgu heldur horfum til einhvers annars. Það er það sem síðasta ríkisstjórn gerði en það er ekki það sem þessi ríkisstjórn er að gera, enda virðist þessi ríkisstjórn ekki hafa miklar áhyggjur af því hvernig atvinnulífinu reiðir af.