breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um aukatekjur af ökutækjum í umferð til að reyna að komast upp í 1,7% af vergri landsframleiðslu, sem hefur verið markmið síðustu ríkisstjórnar. Þetta er auðvitað gert til að standa undir viðhaldi vegakerfisins og nýframkvæmdum en vegakerfið hefur fengið að drabbast niður og innviðaskuldin er orðin gríðarleg, metin á hátt í 200 milljarða. Það er bara skynsamlegt að gera þetta, við getum ekki látið vegakerfið drabbast niður. Það er líka verið að hvetja til orkuskipta í samgöngum og þetta er hannað til að lágmarka áhrif á heimili og fjölskyldur, enda kaupa 60% íslenskra heimila rafmagnsbíla sem eru undanþegnir vörugjöldum. Svo er líka verið að loka fyrir glufur. Það er verið að loka á sértækar ívilnanir og undanþágur frá vörugjöldum. Það er verið að einfalda skattkerfið og auka þannig jafnræði í álagningu vörugjalda. Ég segi já.(BHar: Áfengis- og tóbaks ... [Hlátrasköll í þingsal.])