breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Nú hefjumst við handa við að greiða atkvæði um svokölluð vörugjöld á bifreiðar, mál sem kom hér inn. Mjög svo brött hækkun sem kom algerlega ófyrirséð. Við erum enn að bíða eftir gögnum um það á hvaða forsendum ríkisstjórnin ætlar að sækja sér þessa 7,5 milljarða og hvernig það var reiknað út. Þetta er að hækka meðalfjölskyldubílinn töluvert í verði. Þetta er að breyta kauphegðun núna og mun hafa ófyrirséðar afleiðingar á bílamarkaðinn. Því munum við að sjálfsögðu greiða atkvæði gegn þessum breytingum. Vörugjöld almennt draga úr öryggi í umferðinni. Það er erfiðara fyrir fjölskyldufólk að kaupa sér nýja og öruggari bíla, nýja eyðslugrennri bíla og umhverfisvænni bíla út af vörugjöldum. Þetta er alvarlegt mál.