157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:44]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Nú hefst atkvæðagreiðsla um þessa stórfelldu skattahækkun á bifreiðaeigendur. Hæstv. innviðaráðherra hefur komið hér í þessari umræðu og gumar af því að það eigi að auka fé í vegasamgöngur, í gatnagerð og vegaframkvæmdir um nokkra milljarða. Jafnvel þótt það verði tvöfaldað upp í 12 milljarða þá þurfa menn að hafa það í huga að bifreiðaeigendur bera í dag 80 milljarða kr. skattbyrði. Það eru engin áform um að eyða meiru en 50 milljörðum í vegasamgöngur og vegaframkvæmdir á næsta ári eða á næstu árum, engin áform um annað, 80 milljarðar í skattbyrði á móti þessum 49 milljörðum í vegasamgöngur. Þetta er staðan og tal um að það sé verið að ná skattheimtunni upp í 1,7% af vergri landsframleiðslu er einhver stjarnfræðilegasta delluhagfræðikenning sem hér hefur verið lögð fram sem bendir til þess að þessi vinstri stjórn ætlar ekki að unna skattgreiðendum þess ef vel árar í efnahagslífinu vegna þess að hún ætlar að halda sig við hlutfall af vergri landsframleiðslu. Það er framtíðarsýnin og féleg er hún.