breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Við fengum þessa tillögu eða minnisblað inn í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, minnisblað frá fjármálaráðuneytinu þar sem lögð er til 7,5 milljarða skattahækkun á bifreiðaeigendur, en nefndin átti að útfæra þetta og koma með þetta. Hér erum við því með breytingartillögu frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar þess efnis að 7,5 milljörðum verði bætt í skattheimtu á bifreiðaeigendur. Þetta er náttúrlega óboðleg þingleg meðferð og allir sem vilja senda inn umsagnir — þegar þeir loksins sáu lokaskjalið, hvernig áttu þeir að bregðast við? Það var bara ómögulegt. Við leggjumst því auðvitað gegn þessu og þetta gjald eða þessir skattar koma ofan á alla aðra skatta á bifreiðaeigendur. Það er verið að hækka kílómetragjöldin, það eru krónutöluhækkanirnar, þannig að þetta er algerlega út í hött og ég vona að fleiri hafni þessu.