breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Þetta er til tekjuauka svo það sé sagt. Sama hvað fólki finnst um markmiðin um að 1,7% af vergri landsframleiðslu verði notuð í vegakerfið, og innheimt af þeim sem nota vegina og ökutækjaeigendum, þá er það samt markmið sem alla vega fimm af sex flokkum hér hafa á einhverjum tíma kvittað undir. Síðan kemur auðvitað að því að það þarf að uppfylla það markmið. Þá er kannski dálítið erfitt að þurfa að gera það og hægt að gera það með mismunandi hætti. Ég varð ekki var við það í umræðu um kílómetragjöld að fólk hafi kvartað undan því að þau væru endilega of lág þannig að einhvern veginn þarf að gera þetta. Það hefur ýmislegt verið sagt um hegðunarbreytingar í kjölfar þess að þessar tillögur voru kynntar og mér sýnist á tölum um nýskráningar hjá Samgöngustofu að þær eigi ekki endilega við rök að styðjast. Vinsælasti bíllinn á þessu hausti er áfram Tesla þannig að ég og þingflokkur Viðreisnar styðjum þetta.