157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:48]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Nú hefjast atkvæðagreiðslur, svolítið flóknar, um þennan lið er lýtur að vörugjöldum. Ég hafði óskað sérstaklega eftir úrskurði frá hæstv. forseta vegna þess að ég efast stórkostlega um að þetta standist. Hæstv. forseti hefur úrskurðað að hún telji svo vera, en í það minnsta er hér um ofboðslega ófagleg vinnubrögð að ræða. Það var ekkert um þetta í frumvarpinu sem hæstv. ráðherra mælti fyrir. Þegar við lesum svo meirihlutaálit hv. efnahags- og viðskiptanefndar er bara vonlaust að átta sig á því hvað nákvæmlega er verið að gera. Því hvað er verið að gera þar? Það er verið að vísa í breytingartillögur sem hæstv. ráðherra sendi inn í nefndina, ekki í frumvarpi, bara á minnisblaði. Og hæstv. ráðherra setti einhverja frétt á heimasíðu Stjórnarráðsins. Hvenær gerði hann það? Það var í október. Það er ekki eins og hér hafi verið um tímahrak að ræða. Ráðherranum var í lófa lagið að mæta með þetta frumvarp inn í þingið svo hægt væri að taka málefnalega umræðu um það. Nei, en eins og hæstv. dómsmálaráðherra sagði á síðasta kjörtímabili: Það er farið út með ruslið á föstudögum. Það er PR-mennskan. Það er það sem Stjórnarráðið gerði í þessu tilfelli.