157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:49]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Einn helsti ráðgjafi Jóhönnustjórnarinnar sagði eitt sinn að öll lífsins gæði myndi skattstofn. Það er alveg á hreinu að núverandi ríkisstjórn ætlar að halda sig við þá ráðleggingu frá gamla skattasérfræðingi Jóhönnustjórnarinnar. Vandamálið er að þessi vörugjöld munu ekki innheimtast á næsta ári vegna innflutningsins sem er núna en til lengri tíma litið þá mun þetta gera venjulegu fólki ókleift eða erfiðara fyrir að kaupa sér nýja og öruggari bíla. Það eru afleiðingarnar af þessu frumvarpi. Þetta mun verða til þess að bílaleiguflotinn okkar mun eldast og fjárfestingargeta greinarinnar mun minnka.

Virðulegur forseti. Þetta er dellumál frá A til Ö og það væri meiri bragur á því að við myndum draga þetta til baka.