157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:50]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Hér sjáum við birtast alveg ótrúlega þráhyggju Samfylkingarinnar gegn fjölskyldubílnum, ótrúlega þráhyggju. Við höfum séð þessa þráhyggju í borginni þar sem allt er gert til að reyna að koma í veg fyrir að fólk geti ekið á bíl og nú á þetta að ganga yfir landið og miðin líka. Það er því allt gert einhvern veginn til að heimilin í landinu geti ekki keyrt bíl.

Mig langar að fá að segja það líka að hér kemur ráðherra með skattahækkun upp á 7,5 milljarða á fjölskyldurnar í landinu bakdyramegin inn í þingið. Þetta eru ófagleg vinnubrögð. Þetta var ekki í upphaflegu frumvarpi heldur sendi ráðherra skattahækkun upp á 7.500 millj. kr. á fjölskyldurnar í landinu án þess að það fengi eðlilega þinglega meðferð. Þegar meiri hlutinn vinnur svona, sýnir löggjafarvaldinu svona framkomu, þá er ekki óeðlilegt að maður spyrji sig hvort þetta sé aðför að lýðræðinu sem hér á að vera.