157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:52]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að tala um áfengi og tóbak en það er einhver misskilningur hér. Hv. efnahags- og viðskiptanefnd fékk tillögurnar frá ráðuneytinu, fór vel yfir þær og gerði svo breytingar á tillögum frá ráðuneytinu til hins góða, þar sem þakið á vörugjöldum var hækkað þannig að það næði líka til eyðslumikilla og stórra bíla sem voru ekki í tillögum ráðuneytisins og svo var líka sérstök aðgerð til að koma til móts við tengiltvinnbíla sem eru vel að merkja vinsælasti fjölskyldubíll landsins. Og enn og aftur vil ég nefna það að 60% nýskráninga á bílum á Íslandi eru rafmagnsbílar sem eru undanþegnir vörugjöldum. Þetta er bara mjög góð aðgerð í þágu umhverfisins.