157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:55]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þar kom að því að maður gleddi hæstv. ráðherra; ég held að það hafi ekki gerst á þessu kjörtímabili. En það sem hefur kannski ekki komið skýrt fram í þessari umræðu er að þetta er eitt af því sem við höfum ekki fengið upplýsingar um þó að við höfum haft aðgang að því. Klúður hæstv. ríkisstjórnar, sem hafði ekki manndóm í sér til að láta hæstv. ráðherra koma fram með þessa hækkun upp á 7,5 milljarða, er slíkt að nú er verið að hamstra bíla sem aldrei fyrr. Við höfum ekki fengið að sjá forsendurnar á bak við það hvernig menn ætla að ná í þessa 7,5 milljarða. Nú kynni einhver að segja: Ríkisstjórnin hefur rétt fyrir sér í þessu en það var ekki hægt að verða við ýmsum óskum síðasta sumar þegar við vorum að ræða skattahækkun upp á 7,6 milljarða kr., hún var reyndar upp á það en ekki 7,5 milljarða. Niðurstaðan er sú að hún er ekki að skila sér og hvort sem þetta mun skila sér eða ekki, það er nú harla ólíklegt, þá eiga hv. þingmenn rétt á að vita forsendurnar á bak við hækkunina. En hér eru auðvitað bara enn ein kosningasvikin og ég segi nei.