breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Við óskuðum eftir að greiða sérstaklega atkvæði um þetta af því að það sýnir kannski hvers lags strengjabrúður meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar eru gagnvart fjármálaráðherra sem gat ekki komið með skattahækkunarfrumvarpið sjálfur. Staðan er sú að eyðslugrennstu bílarnir eru að hækka mest, 1–2 milljónir per bíl. Meiri hlutinn áttaði sig á því eftir allar umsagnirnar sem komu fyrir nefndina að þetta væri kannski ekki mjög heppilegt þannig að þau lækkuðu það aðeins en þorðu ekki að fara að breyta það miklu að þau hækkuðu á móti á aðra bíla, vissulega bíla sem eru mikið notaðir á landsbyggðinni, Hilux og Land Cruiser. Kölluðu þá auðvitað lúxusbíla. En hvenær er nóg nóg? 65% voru vörugjöldin og þau ætla að setja þau upp í 70% þannig að upphæðin haldist því þau þurftu að gera nákvæmlega eins og minnisblaðið sagði.