breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði nú að koma upp hér og taka upp hanskann fyrir hæstv. fjármálaráðherra sem er náttúrlega fjarstaddur í ljósi þess að við erum að greiða atkvæði um þennan b-lið, ef ég skil það rétt, en þar er verið að hækka hámark vörugjalds á hvern einasta bíl sem í gildandi lögum er 65%. Hæstv. fjármálaráðherra lagði það lagði til að það yrði óbreytt, þessi ofurskattlagning um 65%. Þá bregður svo við að hv. meiri hluti í hv. efnahags- og viðskiptanefnd ákveður að hækka það samt upp í 70%, væntanlega með þeim rökum sem hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir er að vísa hér til, að það hafi bara þurft að finna tekjurnar í eyðsluna úr ríkissjóði og þess vegna hafi verið farið á svig við tilmæli frá fjármálaráðuneytinu og hæstv. fjármálaráðherra um að hámarksvörugjöld á bifreið yrðu ekki áfram 65%, eins og var óskað eftir, heldur 70%. 70% vörugjald á eina bifreið. Þetta leggja m.a. til hv. þingmenn af landsbyggðinni.