breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Eins og komið hefur hér fram þá er verið að hækka hámark vörugjalda á hverja bifreið upp í 70% til að fjármagna aðrar breytingar á þessari tillögu á minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu þegar við hefðum frekar átt að lækka þetta niður í 40%. Núna er verið að setja 70% vörugjöld á fjölda atvinnutækja, landbúnaðartækja og ökutækja sem eru notuð út um allt land, m.a. er sjö, átta manna fjölskyldubíllinn fyrir stærri fjölskyldurnar eiginlega alltaf í hæstu vörugjöldunum. Allir bílar fluttir inn frá Ameríku eru í hæstu vörugjöldunum. Talandi um að Ameríka sé að setja á okkur 10% toll, hér erum við að setja 70% toll á innflutning frá Bandaríkjunum. En hvað um það. Út af þessum háu gjöldum er orðið hagkvæmara fyrir atvinnutækin að kaupa þyngri og eyðslufrekari bíla af því að þeir bera lægri vörugjöld. Það er hagkvæmara að kaupa sér vörubifreið til notkunar og eftir þessa breytingu verður það enn hagkvæmara að fara í þyngri og eyðslufrekari bíla. Til hamingju, hæstv. umhverfisvæna ríkisstjórn.