157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:01]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða kostulegt tvist, ef það mætti orða það svo, á innheimtu skatta og vörugjalda. Hér er um að ræða að losunarviðmið, sem vörugjöldin byggja að hluta til á, eru hert. Af hverju skyldi það vera? Hvaða rök eru færð fyrir því í þessu frumvarpi? Jú, það er vegna þess að losun bifreiða á undanförnum árum hefur dregist svo mikið saman vegna þess að bílaframleiðendur hafa tekið til sín tilmæli um að draga úr losun og þess vegna hafa bílaframleiðendur gert bílana þannig að þeir losi minna. Þá bregður íslenska ríkisstjórnin á það ráð að herða mörkin, hækka losunarviðmiðið. Hvorki bílaframleiðendur né þeir sem kaupa bílana fá að njóta þess ávinnings sem felst í því að hafa dregið úr losun, þeir hafa keypt jafnvel dýrari bíla og flýtt fyrir vöruþróun í þessum efnum, heldur er losunarviðmiðið hækkað. Hér er vísað til kröfu Evrópusambandsins um minni losun. (Forseti hringir.) Það voru bara fréttir að berast af því að Evrópusambandið væri að henda þeirri kröfu um að banna þessa bíla út á hafsauga. Ég held að hæstv. ríkisstjórn ætti að taka til endurskoðunar þessi mörk.