157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:03]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Herra forseti. Hér eru einmitt greidd atkvæði um losunarviðmiðin. Þetta er einmitt ákvæðið sem mun skipta mestu máli varðandi það hvort hér sé brotið á jafnræðisreglu eða ekki. Hér er verið að þrengja verulega mælinguna á útblæstrinum og hvenær byrjað er að reikna vörugjöldin á bifreiðarnar. Það viðmið var lækkað á sama tíma og margföldunarstuðull er hækkaður úr 0,28% upp í 0,34%. Það er verið að þrengja að á öllum stöðum plús það að nota viðmiðin frá Evrópusambandinu sem Evrópusambandið er búið að segja að eigi ekki að nota til skattlagningar. Þetta er eiginlega þrítryggð vitleysa hérna. Svo hér í f-liðnum er verið að hækka lágmarkið úr 5% í 10%. Með þessum breytingum munu algengustu fjölskyldubílarnir, sem eru millistórir fjölskyldubílar og tengiltvinnbílar, koma enn verr út en þegar fjármálaráðuneytið sendi minnisblaðið hingað inn.