breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Innan furðuverksins finnast furðuverk. Hér er verið að refsa fyrir minni losun. Það er verið að refsa fyrir nýja bíla sem losa minna. Það er verið að refsa fyrir þróun sem hefur verið kallað eftir og ekki hvað síst af þeim meiri hluta sem situr hér núna. Það er verið að refsa í tímalínu líka; sams konar bíll með mismunandi skráningardaga, afi kaupir einn, hv. þm. Pawel Bartoszek kaupir einn og hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson kaupir einn, bara ekki á sama tíma og þeir fá mismunandi útreikninga. Það er ekki hægt að skálda þetta upp.