breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ef ég er á réttum stað í þessu atkvæðagreiðsluskjali erum við að greiða hér atkvæði um undanþágu vegna keppnisbifreiða og keppnishjóla; að vörugjald skuli ekki vera hærra en 500.000 kr. Þarna, virðulegur forseti, finnst mér við vera á mjög slæmum stað í þessu öllu saman. Við höfum fengið mjög harða gagnrýni frá Akstursíþróttasambandi Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands hvað þetta varðar. Þetta mun hafa veruleg áhrif inn í þessa íþróttagrein. Heildarkostnaðurinn var áætlaður um 100 milljónir af þessu. Með þessari breytingu verður hann 90 milljónir. Það er verið að gefa 10 millj. kr. afslátt til þessa íþróttasambands og þessara íþróttafélaga sem þarna eru undir og ég bara trúi ekki öðru en (Forseti hringir.) að hv. efnahags- og viðskiptanefnd taki þetta til skoðunar og breyti þessu þannig að undanþágan verði enn þá í gildi (Forseti hringir.) eftir þessa lagasetningu. Það skiptir þessi íþróttafélög og iðkendurna alveg gríðarlega miklu máli.