breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Munurinn á gjöldunum sem fara úr því að vera 100 milljónir í 90 milljónir er ekki vegna þess að akstursíþróttafélögin greiði svo háan skatt. Þetta kemur til vegna þess að við erum þarna að loka glufu. [Hlátur í þingsal.] Glufan hefur falist í því að á hverju ári hefur verið fluttur inn fjöldi bíla sem eru hvergi skráðir í akstursíþróttum. Á síðasta ári voru fluttir inn 63 bílar en aðeins sjö þeirra eru skráðir hjá AKÍS. Árið 2024 voru 53 bílar og aðeins fimm eru skráðir hjá AKÍS. Við lítum svo á að fólk hafi verið að flytja inn bíla, og það er það sem verið er að vinna með, sem hafa ekki verið notaðir til keppnisíþrótta á Íslandi. Við höfum sett nýjar reglur þar sem þarf að uppfylla þrjú skilyrði til þess að geta skráð bíl sem keppnisbíl og ef þú gerir það þá færðu afslátt af vörugjöldum. Þetta verður hugsanlega endurskoðað á næsta ári en við teljum a.m.k. að við komum vel til móts við akstursíþróttafólk með þessum hætti.