breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Þetta er ein af algengustu afsökunum ríkisstjórnarinnar, að þau séu að loka skattaglufum sem byggjast einmitt á öfundsýki. Hér hafa einstaka ökutæki verið flutt inn og notuð sem safngripir og eru kannski ekki öll skráð til keppni, og allar keppnir fara heldur ekki fram í AKÍS, og þá þarf allt mótorsport á Íslandi að líða fyrir það út af nokkrum krónum í stóra samhengi ríkissjóðs. Við erum á gulu á þessu þar sem að þessi tillaga hér upp á 500.000 kr. skattleysismörk er strax skárri heldur en tillagan sem kom frá ráðuneytinu sem var að taka þessar undanþágur alveg. En að sjálfsögðu vonumst við til þess að hér við 3. umræðu sjái meiri hlutinn að sér og komi til móts við mótorsport á Íslandi, ungt fólk í mótorsporti, og hafi þau áfram undanþegin. (Forseti hringir.) Þetta er ein af stóru ástæðunum fyrir því að við höfum kallað þetta barnaskatt.