157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:10]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér er enn ein öfugmælatillagan hjá hæstv. ríkisstjórn sem segist vera umhverfisvæn. Þið sjáið hér í borgarlandinu og öðru þéttbýli sendibíla sem keyra vörur í verslanir og aðföng á veitingastaði og til verslana. Þessir sendibílar hafa verið undanþegnir vörugjöldum sem atvinnutæki. Nú þurfa þeir að vera 12 tonn til að vera undanþegnir vörugjöldum. Það er verið að útrýma litla, létta sendibílnum úr miðbæ Reykjavíkur. Þetta er nú öll snilldin hjá hæstv. ríkisstjórn. Það er fullt af svona flækjufótum í þessum tillögum sem munu valda enn einni hegðunarbreytingunni vegna ranghugsaðra skattkerfisbreytinga hjá hæstv. ríkisstjórn.