157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að vera vitni að þessari atkvæðagreiðslu. Hér er komið til móts við bændur eins og vera ber. Dráttarvélar eru úti á túnum en ekki á þjóðvegum landsins í þeim mæli sem aðrir bílar og ökutæki eru. Það varð strax ljóst í starfi nefndarinnar, og þar á meðal meiri hluta nefndarinnar, að það ætti að koma til móts við bændur í þessum efnum og það gengur hér eftir.