157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:13]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér er um jákvæða breytingu hjá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að ræða frá minnisblaði hæstv. fjármálaráðherra þar sem fjórhjól, sexhjól og önnur slík tæki sem eru skráð sem dráttarvélar eru áfram undanþegin. Hér var einmitt upphaflegur rökstuðningur frá fjármálaráðuneytinu að þetta væri skattaglufa; það væri kannski einhver sem keypti sér fjórhjól og væri ekki bóndi og því þyrfti að refsa öllum hinum. En sem betur fer sá meiri hlutinn að sér og féll frá þessari breytingu en því miður er hún sú eina sem þar sem undanþága fékk að halda sér algerlega inni frá núverandi vörugjaldafrumvarpi og því styðjum við þetta að sjálfsögðu.