157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:15]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Þarna er m.a. verið að hækka vörugjöld sem voru á alls kyns tæki úr 13% upp í 20%, m.a. er verið að hækka aftanívagna eins og hjólhýsi sem fólk nýtir sér til að ferðast innan lands. Þau fara að bera 20% vörugjöld eftir að þetta verður samþykkt en löndin í kringum okkur hafa slík tæki í 0%. Ég tel að við ættum frekar að stefna þangað en að vera að skattleggja frístundir fólks, sérstaklega þegar við eigum að virða það við fólk að það ferðist innan lands en fari ekki með peningana erlendis.