157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Virðulegi forseti. Hér er verið að fella nokkrar undanþágur enn úr lögunum, m.a. bifreiðar ökukennara og leigubílstjóra. Leigubílstjórafélagið kom fyrir nefndina og lýsti yfir hvað þetta gæti haft mikil áhrif á þá starfsstétt sem hefur búið við ýmsar áskoranir. Þetta mun flækja það hverjir eru í fullu starfi við það og annað slíkt. Hér er því enn einn öfugi hvatinn sem hvetur til hegðunarbreytingar og hefði betur átt að halda þessum undanþágum áfram í lögunum.