breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Mér sýnist þetta vera síðasta atkvæðagreiðslan um vörugjöldin. Það breytir því ekki að við höfum verið að samþykkja nokkrar breytingar hér sem ganga í þá átt að það er verið að hækka viðmiðin. Það er verið að hækka skatt á þær bifreiðar þar sem hefur tekist að minnka losun en það er verið að hækka viðmiðin. Það er sem sagt verið að refsa þeim sem hafa staðið sig vel. Við höfum auðvitað greitt atkvæði á móti því en það hefur ekki dugað til, að sjálfsögðu. Þetta minnir svolítið á, herra forseti, þegar hér fyrr á öldum voru öfgafullir prestar sem fundu alltaf nýja ástæðu eða nýja synd til þess að geta pískað sjálfa sig meira og oftar en áður.