157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Forseti. Ég vil bara koma hérna upp til að vekja athygli á því hversu ofboðslega víðtækar skattahækkanirnar eru. Hér má sjá í mörgum liðum hvernig þessar krónutöluhækkanir hafa áhrif og þetta er allt á bifreiðar. Þessi kafli er í ofanálag við allar aðrar skattahækkanir sem þessi ríkisstjórn er með á bifreiðar.