157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:24]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Það er af svo mörgu að taka þegar kemur að þessari atkvæðagreiðslu en ég vil þó vekja athygli á því að eitt af því sem er þarna, virðulegi forseti, er að við erum að flækja regluverk. Ríkisstjórnin er með slíkar öfugmælavísur því að hún talar oft um að einfalda þetta. En bara svo við áttum okkur á því þá telja þeir aðilar sem verða fyrir þessu að kostnaður þeirra við það, þegar hæstv. ríkisstjórn er að flækja regluverkið, sé um 1,6 milljarðar á ári.

Virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn ætlaði að lækka skatta, alla vega ekki að hækka þá, en hún er að hækka þá. Hún ætlaði að einfalda regluverk, hún er að flækja regluverk. Hún ætlaði að gera Ísland samkeppnishæfara, hún er að skaða samkeppnishæfnina. Þetta er eitt dæmi um það.