157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:25]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um krónutöluhækkanir á þungaskattinum. Bandormurinn hefur einmitt gert ráð fyrir því t.d. að kílómetragjaldið yrði ekki samþykkt af því að öll vörugjöld og kílómetragjöld sem eru fyrir og annað slíkt er hækkað hér í þessu; bensín- og olíugjöld og allt saman. Það var nú búið að gera ráð fyrir því að þetta gæti farið þannig að kílómetragjöldin myndu ekki klárast hér. En hér er einmitt þungaskattskerfið; það er kílómetragjald sem hefur verið við lýði þar á mjög afmarkað mengi ökutækja sem hefur þá þróast þar sem það eru miklu, miklu lægri upphæðir. Það hefur líka verið auðveldara að bregðast við því og þá hefur það ekki haft jafn mikil áhrif þar sem erfitt er að mæta akkúrat aðstæðum hverju sinni. (Forseti hringir.) Þegar kílómetragjaldið mun snarhækka verða áhrifin svo miklu verri og erfiðara verður að bregðast við háum álögum.