157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:27]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Miðflokkurinn leggst gegn þessari hækkun eins og öðrum hækkunum á bifreiðaeigendur. Það er vert að veita því raunverulega athygli hversu ógagnsæ öll þessi skattlagning á bifreiðar er. Þetta er eitt dæmi þess og kílómetragjaldið til viðbótar. Það er verið að tala um að einfalda kerfið. Það er ekkert verið að einfalda eitt eða neitt. Það er verið að viðhalda flóknu kerfi sem er ógagnsætt og erfitt fyrir fólk að veita þessum hækkunum aðhald. Miðflokkurinn leggst gegn þessum breytingum eins og öðrum skattahækkunum sem hér eru lagðar fram.